Ég sé eftir því að
hafa keypt mér bíl, enda alltaf sem andskotans driver.. Get
aldrei tjúttað neitt af viti með strákunum. Mér tekst þó
alveg ágætlega að djamma þótt að ég sé edrú. Maður er samt
alltaf jafn meðvitaður um sjálfan sig á dansgólfinu
Jæja,
ég ætla að reyna að muna hvað ég gerði um helgina svo að
þessi síða fari nú ekki að deyja alveg strax 
Föstudagurinn,
úff... Villi, ertu að djóka eða? "Strákar! Við erum að fara í partý
í bænum hjá einhverjum píum maður, Baldursgatan, veistu hvar það er
Dóri?" "Já, ég veit hvar það er" "Okey maður, sweet,
förum þangað."
Villi, aldrei! og ég meina
aldrei!! gera þetta aftur! Ég kalla það ekki að vera í partý þegar
ég sit inní einhverri 15 fermetra kompu á rúmmi talandi við ykkur
strákana á meðan það eru tvær sjúskaðar píur að mála sig
EITURgrænar um augun, sötrandi hvítvín hlustandi á "hey mickie you
so fine, you so fine you blow my mind hey mickie!!"
En það rættist þó úr þessu
þegar við fórum niðrí bæ, kíktum á glaumbar til að byrja með,
Svenni komst naumlega inn. Það meikar alveg sense sem
að dyravörðurinn var að segja Svenni, þú ert náttla blendingur
(no offense) þannig að það er svolítið steikt að vera með skilríkin
hans Rabba, en þú hefur komist inn á öðrum stöðum þannig að þetta
ætti ekki að vera svo mikið mál kallinn minn 
Díses kræst bobby hvað ég
varð samt hræddur á tímabili inni á Glaumbar maður, ég er að segja
þér það að ég var næstum því étinn. Setjast tvær stelpur hjá okkur
veeeeeeeel yfir kjörþyngd og önnur þeirra grípur í hendina á mér og
dregur mig til sín og spyr hvort ég vilji ekki koma með henni heim,
ég var ekki alveg 100% á því en svo sló ég til. Nei andskotinn!! Ég
er að bulla þarna, en já um þessa stelpu, hún er 21 árs, tveggja
barna móðir og álíka jafn fim og flóðhestur á hlaupabretti. Villi
fékk að dansa við hana, og þegar ég segi dansa þá meina ég horfa á
hana detta niður í jörðina og gera sig að athlægi. Svo undir
morguninn þá pilluðum við okkur heim. Að skríða uppí rúm er það
besta sem að hægt er að gera eftir svona djamm, ég var feginn að
vera ekki fullur því að þá hefði mig kviðið afleyðinganna daginn
eftir.
Jæja, ég læt Jóhann blogga
um laugardaginn sinn fyrst því að ég nenni ekki meir í bili, svo
skal ég henda hérna inn hvað ég gerði á laugardaginn, vorum
nefnilega ekki að djamma saman við Jóhann, aldrei þessu vant

Bless í bili
Kv. Doret
